Hvað er Laser Peeling?
Laser Peeling er lasermeðferð framkvæmd með svokallaðri pixel tækni sem skiptir lasergeislanum upp í marga minni geisla sem skella á húðinni í punktaformi. Líkt og nafnið gefur til kynna veitir meðferðin ysta lagi húðar öflugt „peeling“ sem gerir það að verkum að viðgerðar- og endurnýjunarferli fer af stað. Þar sem lasergeislarnir vinna djúpt niður í undirlag húðarinnar örvast einnig framleiðsla kollagens, elastíns og annarra uppbyggingarpróteina húðarinnar. Heilbrigða húðin í kringum laserpunktana gerir það að verkum að húðin er fljótari að jafna sig eftir meðferðina, auk þess að skila sér í hraðari kollagenmyndun.
Um er að ræða örugga og áhrifaríka meðferð sem hentar öllum aldurshópum og flestum húðgerðum (I-V).