Augnlyfting er áhrifarík meðferð sem lyftir augnlokum án skurðaðgerðar, þéttir húð á augnsvæðinu og dregur úr hrukkum og fínum línum. Með radiofrequency plasma tækni frá Alma Lasers örvum við náttúrulega framleiðslu kollagens og elastíns fyrir sýnilega þéttari húð.
Augnsvæði


Augnlyfting er húðmeðferð sem var þróuð til að lyfta signum augnlokum án skurðaðgerðar. Meðferðin þéttir einnig húð á augnsvæðinu, vinnur gegn fínum línum og hrukkum og hjálpar til við að endurheimta ferskara og opnara yfirbragð augnanna.
Radiofrequency plasma tækni frá Alma Lasers er notuð við framkvæmd meðferðar. Þessi tvíþætta tækni miðar að því örva kollagen- og elastínframleiðslu á svæðinu með náttúrulegum hætti. Microplasma neistar sem skadda ysta lag húðar (e. ablative effect), án þess að valda varanlegum skaða eða öramyndun, í þeim tilgangi að koma viðgerðarferli húðarinnar af stað og örva þannig endurnýjun hennar. Á sama tíma og unnið er á ysta lagi húðar er radiofrequency tækni notuð til að beina hita beint niður í undirlag húðarinnar (e. thermal effect) og örvar þannig kollagen og elastínþræði, í kjölfarið styrkist bandvefur húðarinnar. Með hjálp þessarar tvíþættu tækni þéttist húðin smám saman og augnlok lyftast.
Meðferðin hentar öllum húðgerðum og aldurshópum.
Með hækkandi aldri hægir á framleiðslu kollagens og elastíns sem gerir það m.a að verkum að augnlok byrja að síga, húð á augnsvæðinu fer að slappast og augnpokar byrja að myndast. Húðin á augnsvæðinu er þunn og viðkvæm og er því algengt að fyrstu hrukkurnar komi þar í kring.
Hægt er að framkvæma Augnlyftingu einungis á efra augnsvæði sé markmið með meðferð að lyfta signum augnlokum eða einungis á neðra augnsvæði sé markmið með meðferð að þétta slappa húð, milda fínar línur og birta uppá augnsvæðið en með því að taka bæði efra og neðra augnsvæði næst góður alhliða árangur.
Meðferðina má framkvæma sem forvörn fyrir þá sem finna fyrir að húð á augnlokum sé að byrja þyngjast og viðhalda þannig þéttari húð og koma í veg fyrir augnlokaaðgerð á síðari stigum.


Árangur: Árangur meðferðar á ysta lag húðar kemur yfirleitt fljótt í ljós eftir að húðin hefur jafnað sig. Áhrif á dýpri lög húðarinnar þróast smám saman og getur tekið allt að þrjá mánuði að sjá endanlegan árangur.
Fjöldi meðferða: Fjöldi meðferða fer eftir markmiði meðferðar og ástandi húðar. Ef augnlok eru farin að síga er yfirleitt mælt með 2–4 meðferðum til að ná sem bestum árangri. Ef húð er aðeins farin að slappast eða fínar línur að myndast geta 1–2 meðferðir verið nægjanlegar, en við meiri slappleika eða dýpri hrukkur getur þurft 3–4 meðferðir. Meðferðir eru framkvæmdar með 6–8 vikna millibili, eftir því hversu djúpt unnið er í undirlagi húðarinnar.


Fyrir meðferð: Mælt er með að bera EMLA deyfikrem á meðferðarsvæðið um 45 mínútum fyrir meðferð til að draga úr óþægindum meðan á meðferð stendur.
Eftir meðferð: Roði og bólga geta komið fram og varað frá nokkrum klukkustundum upp í 2–3 daga. Dökkir blettir og hrúður sjást yfirleitt í 5–10 daga. Mikilvægt er að láta hrúðrið detta af sjálfkrafa til að lágmarka hættu á öramyndun.
Forðast skal að bleyta meðferðarsvæðið fyrstu tvo dagana og gæta vel að hreinlæti. Berið græðandi krem eða serum á svæðið tvisvar á dag í að minnsta kosti eina viku eftir meðferð. Við mælum meðal annars með Phyto Corrective Gel frá SkinCeuticals og Epidermal Repair, sem styðja við gróanda og endurnýjun húðarinnar.
Forðist sól eins og kostur er fyrstu vikuna eftir meðferð og notið sólarvörn með háum varnarstuðli. Einnig er mælt með að sleppa líkamsrækt samdægurs og forðast sund í að minnsta kosti eina viku.
Berið EMLA deyfikrem á hreina og þurra húð 45-60 mínútum fyrir meðferð. Bera skal kremið á meðferðarsvæði en ekki nudda því inn í húð. Gott er að bæta smá deyfikremi á meðferðarsvæði á 15 mín fresti fram að meðferð.
Deyfing endist almennt í um 2 klst eftir að krem hefur verið fjarlægt af líkama en í styttri tíma eftir að krem hefur verið fjarlægt af andliti.
Ef EMLA berst fyrir slysni í auga skal skola það strax vel með volgu vatni og hlífa auganu þar til deyfingin fer úr.



Ertu með spurningar áður en þú bókar Augnlyftingu eða vilt fá ráðgjöf um hvort meðferðin henti þér?
Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.
