EXO-Grow háraukandi meðferð – Fyrir hárþynningu og hárlos

EXO GROW er háþróuð hármeðferð sem sameinar Dermapen örnálun og MG EXO GROW serum frá DP Dermaceuticals. Meðferðin er þróuð til að styðja við heilbrigðan hársvörð, draga úr hárlosi og skapa betri skilyrði fyrir sterkara og þéttara hár. Meðferðin hentar bæði konum og körlum sem hafa tekið eftir auknu hárlosi, þynnra hári eða vilja styðja við heilbrigðan hárvöxt.

Hársvörður • Hárþynning • Aukið hárlos • Þynnri svæði

Dermapen 4 örnálun á hársverði með MG-EXO-GROW serum
Við erum opin núna (9-17)
Dermapen 4 örnálun á hársverði með MG-EXO-GROW serum

Hvernig virkar EXO-Grow háraukandi meðferð?

Meðferðin er framkvæmd með Dermapen 4 örnálun á hársverði, þar sem örfínar nálar mynda þúsundir örsmárra rása í húðinni. Það örvar náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar og hjálpar jafnframt virkum innihaldsefnum að komast betur að meðferðarsvæðinu.
Samhliða er MG-EXO-GROW serum borið á hársvörðinn. Serumið inniheldur meðal annars exósóm, vaxtarþætti, peptíð, amínósýrur, ceramíð og hýalúrónsýru. Samsetningin er þróuð til að styðja við heilbrigðan hársvörð og skapa góð skilyrði fyrir sterkara og heilbrigðara hár.

Árangur af EXO-Grow

Árangur þróast smám saman og er einstaklingsbundinn. Meðferðin miðar að því að draga úr hárþynningu, styrkja hár sem fyrir er og styðja við aukinn þéttleika og heilbrigðari hársvörð.

Oft er mælt með nokkrum meðferðum í upphafi til að byggja upp árangur. Breytingar á hárvexti taka tíma og því er árangur almennt metinn yfir nokkurra mánaða tímabil.

Hárskanni greinir ástand hárs og hársvarðar hjá Húðfegrun
Þéttara hár eftir EXO-Grow meðferð

Fyrir hverja hentar EXO-GROW?

EXO-GROW hentar þeim sem hafa tekið eftir breytingum á hári eða hársvörð, svo sem auknu hárlosi, hárþynningu eða veikara og þynnra hári.

Meðferðin styður við hársvörð og hársekki, með það að markmiði að bæta umhverfi hársins, styrkja hárið frá rótum og styðja við heilbrigðan hárvöxt. Hún getur einnig hentað þeim sem vilja fyrirbyggja frekari þynningu og bæta almennt ástand hársvarðarins.

Sérfræðingar okkar meta ástand hárs og hársvörðar og leggja í kjölfarið upp sérsniðna meðferðaráætlun út frá þörfum hvers og eins.

Hvað eru exósóm?

Exósóm eru örsmáar agnir sem taka þátt í samskiptum milli frumna og miðla ýmsum boðefnum sem tengjast náttúrulegum ferlum frumna og vefja.

MG-EXO-GROW frá DP Dermaceuticals inniheldur sérhæfða exósómatækni ásamt öðrum virkum innihaldsefnum sem vinna saman að því að styðja við heilbrigði hársvarðarins og skapa góð skilyrði fyrir hársekkina.

Serumið er sérstaklega þróað til notkunar samhliða Dermapen 4 örnálun á hársverði, þar sem örnálin hjálpar virku innihaldsefnunum að komast betur að meðferðarsvæðinu.

MG-EXO-GROW serum frá DP Dermaceuticals
Dermapen 4 örnálameðferð

Helstu kostir meðferðarinnar

  • Styður við heilbrigðan hársvörð.
  • Hjálpar til við að draga úr hárlosi.
  • Styður við sterkara og þéttara hár.
  • Styður við frumuendurnýjun og bætir ástand hársvarðar og hárs
  • Eykur upptöku virkra efna með Dermapen.
  • Styður við náttúrulegt ferli endurnýjunar hársvarðarins.

Hárskanni greinir ástand hárs og hársvarðar

Í fyrstu meðferð gerir sérfræðingur okkar stutta greiningu með Dp SCAN.

‍

Tækið tekur myndir af húðinni og notar gervigreind til að meta ástand hennar. Greiningin tekur aðeins nokkrar mínútur en gefur sérfræðingnum skýrari mynd af ástandinu. Út frá niðurstöðunum metum við ástand hárs og hársvarðar og leggjum upp sérsniðna meðferðaráætlun út frá þörfum hvers og eins, þar á meðal hvaða meðferð og serum henta þér.

‍

Niðurstöðurnar eru vistaðar í prófílnum þínum og gera okkur kleift að fylgjast með breytingum og árangri meðferða yfir tíma.

Hárskanni metur ástand hársvarðar
Viðskiptavinur fær ráðgjöf

Fyrir og eftir EXO-Grow – undirbúningur og eftirmeðferð

Fyrir meðferð: Hárið skal vera hreint og laust við hárvörur. Forðast skal ertandi meðferðir á hársverði dagana fyrir meðferð. Hársvörðurinn þarf að vera heilbrigður og laus við sýkingar eða virk útbrot.

Eftir meðferð:
Vægur roði og viðkvæmni í hársverði eru eðlileg fyrstu klukkustundirnar eftir meðferð. Til að styðja við bata og hámarka árangur er mikilvægt að: Forðast hárþvott fyrsta sólarhringinn. Sleppa sundi, heitum pottum og mikilli svitamyndun fyrsta sólarhringinn. Forðast ertandi hárvörur þar til hársvörðurinn hefur jafnað sig.

Nota EXO GROW heimavörurnar reglulega samkvæmt ráðleggingum sérfræðings til að styðja við árangur meðferðarinnar og viðhalda heilbrigðu ástandi hársvarðarins. EXO GROW heimameðferðin er mikilvægur hluti af meðferðarferlinu og hjálpar til við að styðja við árangur milli meðferða.

Árangur og endingartími

Fjöldi meðferða: Mælt er með 4–6 meðferðum með 2–4 vikna millibili. Fjöldi meðferða fer eftir ástandi hárs og markmiðum hvers einstaklings.

Árangur: Árangur EXO GROW meðferðarinnar kemur smám saman þar sem unnið er að því að styðja við heilbrigt umhverfi hársvarðarins og náttúrulega endurnýjun þess. Bestur árangur næst með meðferðarlotu ásamt reglulegri heimameðferð með EXO GROW hárvörunum, sem styðja við áframhaldandi umhirðu hársvarðar og hárs milli meðferða.

‍

Húðfegrun húðmeðferðarstofa

Fyrir og eftir myndir

Fyrir og eftir EXO-Grow meðferð, hársvörður
Fyrir og eftir EXO-Grow meðferð, hársvörður að ofan
Fyrir og eftir EXO-Grow meðferð, hársvörður
Fyrir og eftir EXO-Grow meðferð, hársvörður að ofan

Húð- og lasermeðferðir fyrir hrukkur og línur

Hafðu samband varðandi EXO-Grow

Ertu með spurningar áður en þú bókar EXO-Grow eða vilt fá ráðgjöf um hvort meðferðin henti þér?

Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.

Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Hjá Húðfegrun leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og meðferðir sem sniðnar eru að þínum þörfum. Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina hvort sem þú hefur spurningar um húðmeðferðir, líkamsmótun eða bókanir. Með faglegri þjónustu og nútímalegri tækni leggjum við áherslu á öruggar meðferðir og náttúrulegan árangur.