DermaBooster – MG EXO Skin

Endurnýjandi Dermapen meðferð með exosome-serumi

Meðferðin sameinar nú Dermapen örnálun og MG EXO Skin serum frá DP Dermaceuticals, sem inniheldur exosome, hýalúronsýru, ceramíð og peptíð.

Samsetningin styður náttúrulega endurnýjun húðarinnar, örvar kollagenframleiðslu og hjálpar til við að bæta raka, þéttleika og ljóma húðarinnar. Meðferðin hentar sérstaklega vel fyrir húð sem sýnir fyrstu merki öldrunar, er þurr, viðkvæm eða hefur misst líf og ljóma.

Andlit • Háls • Augnsvæði • Hendur

DermaBooster meðferð framkvæmd í björtum og faglegum aðstæðum í miðbæ Reykjavíkur. Myndin sýnir annars vegar Dermapen örnálameðferð (microneedling) sem örvar kollagenframleiðslu og eykur endurnýjun húðar, og hins vegar nákvæma innspýtingu með hyaluronic sýru framkvæmd af löggiltum hjúkrunarfræðingi. Meðferðin sameinar djúpan raka, aukna teygjanleika og sýnilega bætingu á áferð húðar með öruggum og faglegum vinnubrögðum.
Hringdu í okkur og bókaðu tíma hér
Við erum opin núna (9-17)
Mynd frá húðklíníku Húðfegrunar sýnir nýjustu tæknibúnaðinn sem notaður er við microneedling og lasermeðferðir. Nútímalegt og faglegt umhverfi þar sem notuð eru aðeins bestu tæki á markaðnum. Bókaðu faglega meðferð í dag.

Hvernig virkar DermaBooster?

DermaBooster er öflug endurnýjandi exósóma meðferð sem má líkja við svokallaða biostimulation meðferð.

Meðferðin er framkvæmd með Dermapen®, þar sem örfínar nálar mynda örsmáa stungupunkta í húðinni sem virkja náttúrulega endurnýjun hennar og örva framleiðslu kollagens og elastíns. Samhliða er MG EXO Skin serum borið á húðina og nýtt í meðferðinni svo virku efnin nýtist sem best.

MG EXO Skin inniheldur meðal annars hýalúrónsýru, ceramíð, peptíð og exósóm sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja húðvarnir og veita henni aukinn raka. Samsetning Dermapen og MG EXO Skin styður jafnframt við náttúrulegt bataferli húðarinnar eftir meðferð.

DermaBooster hjálpar til við að bæta raka, þéttleika, ljóma og áferð húðarinnar. Meðferðin hentar sérstaklega vel fyrir húð sem sýnir merki öldrunar, ójafnan húðlit eða hefur tilhneigingu til roða og rósroða.

Helstu kostir DermaBooster

  • Djúpur raki og aukinn ljómi.
  • Þéttari og sterkari húð.
  • Sléttari húðáferð.
  • Minni sýnileiki fínna lína.
  • Jafnari húðtónn.
  • Minni roði og erting.
  • Stuðningur við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
  • Ferskara og heilbrigðara yfirbragð.
  • Dregur úr merkjum öldrunar.

Meðferðin hentar flestum húðgerðum og veitir ferskt og náttúrulegt útlit með lágmarks batatíma.

Diana hjá Húðfegrun tekur á móti viðskiptavinum í hlýlegri og nútímalegri móttöku. Faglegt teymi hjúkrunarfræðinga býður upp á nýjustu húðmeðferðir á Íslandi. Bókaðu tíma og njóttu þjónustu í klínísku umhverfi.
Mynd frá húðklíníku Húðfegrunar sýnir nýjustu tæknibúnaðinn sem notaður er við microneedling og lasermeðferðir. Nútímalegt og faglegt umhverfi þar sem notuð eru aðeins bestu tæki á markaðnum. Bókaðu faglega meðferð í dag.

Af hverju MG EXO Skin?

MG EXO Skin er fjölhæft exósóma serum sem er þróað til notkunar með Dermapen. Serumið sameinar exósóm, hýalúronsýru, ceramíð og peptíð í einni öflugri formúlu sem styður við endurnýjun húðarinnar, eykur raka og styður við húðina í kjölfar örnálameðferðar.MG EXO Skin sameinar eiginleika nokkurra sérhæfðra serumum í einni formúlu, þar sem virku efnin vinna saman að því að styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og bæta ástand hennar.
Ólíkt öðrum MG serumum frá DermapenWorld, sem eru sérsniðin að ákveðnum húðþörfum, er MG EXO Skin fjölvirk formúla sem getur unnið samtímis að ólíkum þáttum húðarinnar. Með öflugri exosome-tækni styður serumið við náttúruleg endurnýjunarferli húðarinnar og stuðlar að raka, styrk og endurnærðu útliti hennar.

MG EXO skin hefur sýnt fram á að:

  • Styðja við endurnýjun húðarinnar.
  • Örva náttúrulega framleiðslu kollagens og elastíns.
  • Styðja við frumuendurnýjun og bataferli húðarinnar.
  • Hjálpa til við að draga úr sýnileika öldrunarmerkja og litabreytinga.
  • Róa húð sem hefur tilhneigingu til roða og rósroða.
Boðið er upp á tvær útgáfur

DermaBooster með Uber Peel

Til að auka árangur DermaBooster er hægt að bæta við ÜBER Peel, markvissri sýrumeðferð sem er framkvæmd strax eftir örnálameðferð. Meðferðin styður við endurnýjun húðarinnar, bætir húðáferð og gefur húðinni aukinn ljóma og frísklegra útlit.

  • ÜBER Peel PRO
    Meðhöndlar allt svæðið og hentar vel fyrir húð sem sýnir merki öldrunar, litabreytingar, sólarskemmdir, sýnilegar svitaholur eða er bólugjörn.
  • ÜBER Peel MD
    Markviss sýrumeðferð sem er borin á afmörkuð svæði þar sem unnið er sérstaklega með djúpar hrukkur, húðslit og djúp ör, þar á meðal bóluör. Meðferðin getur einnig hentað við melasma og öðrum þrálátum litabreytingum í húð.

Sérfræðingar okkar meta hvort ÜBER Peel henti sem viðbót við DermaBooster og velja þá útgáfu sem hentar húðinni og meðferðarmarkmiðum hvers og eins.

Diana hjá Húðfegrun tekur á móti viðskiptavinum í hlýlegri og nútímalegri móttöku. Faglegt teymi hjúkrunarfræðinga býður upp á nýjustu húðmeðferðir á Íslandi. Bókaðu tíma og njóttu þjónustu í klínísku umhverfi.
Faglegt starfsfólk Húðfegrunar í Reykjavík sem sérhæfir sig í Derma Booster meðferðum og persónulegri húðumhirðu fyrir ferskara útlit.

Mikilvægar upplýsingar fyrir og eftir DermaBooster

Fjöldi meðferða: Mælt er með að fara í 4–6 meðferðir til að ná sem bestum árangri. Meðferðir má framkvæma með 2 vikna millibili, allt eftir húðgerð og markmiðum hvers einstaklings.

Árangur:

Kollagenuppbygging húðarinnar hefst strax að meðferð
lokinni og árangur eykst jafnt og þétt dagana og vikurnar eftir
meðferð. Almennt tekur 4–6 vikur að sjá endanlegan árangur af
hverri meðferð..

Fyrir meðferð:

Til að undirbúa húðina fyrir DermaClear meðferð er mikilvægt að:

  • Forðast sól og ljósabekki í að minnsta kosti 7 daga fyrir meðferð.
  • Ekki nota retínól, sýrur eða aðrar ertandi húðvörur 3–5 dögum fyrir meðferð.
  • Gæta þess að húðin á meðferðarsvæðinu sé heil og laus við sýkingar, sár eða virk útbrot.
Undirbúningur fyrir Derma Booster húðmeðferð hjá Húðfegrun í Reykjavík í hreinu og faglegu meðferðarumhverfi.
Sérfræðingur hjá Húðfegrun í Reykjavík sem framkvæmir Derma Booster húðmeðferðir fyrir djúpan raka, aukinn ljóma og heilbrigðari húð.

Eftir meðferð:

Vægur roði og hitatilfinning eru eðlileg fyrstu klukkustundirnar eftir DermaBooster meðferð. Í sumum tilfellum getur húðin verið þurr eða flagnað lítillega fyrstu dagana á meðan hún er að jafna sig og endurnýja sig.
Til að styðja við bata húðarinnar eftir meðferð er mikilvægt að:

  • Nota rakagefandi og græðandi húðvörur samkvæmt ráðleggingum sérfræðings og veita húðinni sérstaklega góðan raka fyrstu dagana.
  • Forðast retínól, sýrur og aðrar ertandi húðvörur þar til húðin hefur jafnað sig.
  • Nota daglega sólarvörn með að minnsta kosti SPF 30 og forðast beina sól eins og hægt er fyrstu vikuna eftir meðferð.
  • Sleppa líkamsrækt, sundi og heitum pottum fyrsta sólarhringinn eftir meðferð.

Við mælum sérstaklega með Phyto Corrective Gel frá SkinCeuticals til að róa húðina og styðja við rakagjöf eftir meðferð.

Hafðu samband varðandi DermaBooster

Ertu með spurningar áður en þú bókar DermaBooster eða vilt fá ráðgjöf um hvort meðferðin henti þér?

Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.

Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Hjá Húðfegrun leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og meðferðir sem sniðnar eru að þínum þörfum. Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina hvort sem þú hefur spurningar um húðmeðferðir, líkamsmótun eða bókanir. Með faglegri þjónustu og nútímalegri tækni leggjum við áherslu á öruggar meðferðir og náttúrulegan árangur.

Laser- og húðmeðferðir fyrir húðáferð