Húðþétting - meðferð við slappri húð og appelsínuhúð

Húðþétting er RF-meðferð sem styrkir slappa húð og dregur úr ásýnd appelsínuhúðar með því að örva kollagenframleiðslu, án skurðaðgerðar. Meðferðin hentar á maga, læri, handleggi, háls og önnur svæði þar sem húðin hefur misst þéttleika.

Við bjóðum uppá  30% afslátt ef greitt er fyrir 4 skipti, fullkomið tækifæri til að ná enn betri og varanlegri árangri.

Magasvæði – Læri – Rass – Upphandleggir – Andlit – Háls

Hjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun framkvæmir húðþéttingu á maga og mitti í klínísku umhverfi í Reykjavík. Sársaukalaus meðferð með nýjustu RF tækni sem styrkir og þéttir húð. Bókaðu faglega meðferð í dag.
Við erum opin núna (9-17)
Nærmynd af húðþéttingu þar sem notuð er háþróuð tækni til að styrkja húð á maga eftir þyngdartap eða meðgöngu. Húðfegrun notar nýjustu RF tækni fyrir örugga og árangursríka meðferð. Bókaðu tíma á klíníkunni í Reykjavík.

Hvernig virkar meðferðin?

Meðferðin er framkvæmd með Accent Prime frá Alma Lasers, sem byggir á radiofrequency (RF) tækni. Bylgjurnar koma vatnssameindum í húðinni á hreyfingu og núningurinn á milli þeirra myndar hita í vefjum. Þar sem stór hluti húðarinnar er vatn nær hitinn vel til hennar, vefirnir draga sig saman og framleiðsla kollagens örvast.Til að ná sem bestum árangri þarf rakabúskapur líkamans að vera góður og því er mikilvægt að drekka vel af vatni bæði fyrir og eftir hverja meðferð. Meðferðin er sársaukalaus og hentar öllum húðgerðum og aldurshópum.

Þéttu og styrktu slappa húð

Húðþétting er þróuð til að styrkja og þétta slappa húð, hvort sem hún stafar af aldri, þyngdartapi eða meðgöngu. Meðferðin vinnur djúpt í undirlagi húðarinnar, hjálpar vefjum að draga sig saman og örvar kollagenframleiðslu. Útkoman er þéttari og stinnari húð.

Hjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun undirbýr RF Húðþéttingu á maga og líkama
Nærmynd af húðþéttingu þar sem notuð er háþróuð tækni til að styrkja húð á maga eftir þyngdartap eða meðgöngu. Húðfegrun notar nýjustu RF tækni fyrir örugga og árangursríka meðferð. Bókaðu tíma á klíníkunni í Reykjavík.

Dragðu úr ásýnd appelsínuhúðar

Húðþétting getur dregið úr ásýnd appelsínuhúðar með því að hita vefina og hjálpa þeim að draga sig saman. Húðin fær sléttari og mýkri áferð.

Dragðu úr ummerkjum öldrunar

Kollagen er eitt mikilvægasta byggingarprótein líkamans. Með hækkandi aldri hægir á framleiðslu þess og húðin fer að slappast. Húðþétting örvar kollagenmyndun og hjálpar húðinni þannig að viðhalda stinnleika sínum.

Starfsfólk Húðfegrunar fer yfir meðferðarsvæði og árangur af Húðþéttingu og RF meðferðum
Ráðgjöf hjá Húðfegrun fyrir Húðþéttingu eftir þyngdartap og slappa húð

Jafnaðu áferð og húðtón

Meðferðin styður við endurnýjun húðarinnar djúpt í undirlaginu, sem skilar sér í fallegri áferð og jafnari húðtón. Hún getur einnig mildað ásýnd húðslita og öra um leið og húðin þéttist og hentar því vel á magasvæði eftir meðgöngu.

Húðþétting með öðrum meðferðum

Til að ná fram sem mestri virkni er gott að blanda saman ólíkum meðferðum með mismunandi áherslur. Hægt er að leita ráðgjafar hjá sérfræðingum Húðfegrunar til að finna þær meðferðarsamsetningar sem henta þinni húð best.

Dæmi um meðferðir sem henta vel samhliða Húðþéttingu eru Fitueyðing Ultrasound fyrir líkama eða háls og SkinBooster fyrir andlit.

Húðþétting fyrir andlit og háls með RF tækni hjá Húðfegrun
Móttaka Húðfegrunar í Reykjavík fyrir Húðþéttingu og líkamsmótun

Almennar upplýsingar

Fjöldi meðferða: Til að ná sem bestum árangri má áætla að þörf sé á 4–6 meðferðum og að líða þurfi minnst tvær vikur á milli þeirra. Árangur kemur fram hægt og rólega í allt að 3 mánuði eftir hverja meðferð. Mikilvægt er að viðhalda heilbrigðum lífsstíl samhliða meðferðum.

Fyrir meðferð:
Til að auka árangur er mikilvægt að drekka minnst 2 lítra af vatni á dag, í minnst 3 daga fyrir meðferð.

Eftir meðferð:
Roði og bólga geta myndast og varað í 1–2 daga, eftir meðferðarsvæði. Mikilvægt er að drekka minnst 2 lítra af vatni á dag, í minnst 3 daga eftir meðferð. Mælt er með að bera rakagefandi krem á meðferðarsvæðið tvisvar á dag í viku eftir meðferð og forðast sund og líkamsrækt samdægurs. Notaðu sterka sólarvörn í minnst viku eftir meðferð og forðastu sól eins og hægt er.

Húðþétting og SkinBooster

Samsetning þessara meðferða hentar vel þeim sem vilja gefa þreyttri húð, sem er byrjuð að slappast, þéttingu, raka og ljóma. Báðar meðferðirnar örva kollagenmyndun í mismunandi lögum húðarinnar: Húðþétting dýpra í undirlaginu og SkinBooster í efri lögum hennar. Þannig næst alhliða þétting til lengri og skemmri tíma. SkinBooster er inndæling með hýalúrónsýru sem gefur húðinni jafnframt raka og ljóma og nærir hana með steinefnum og amínósýrum.

Sérfræðingur hjá Húðfegrun veitir ráðgjöf fyrir Húðþéttingu og líkamsmótun í Reykjavík

Fyrir og eftir árangur af Húðþéttingu

 Húðþétting Þéttir og styrkir slappa húðMynd sýnir maga fyrir og eftir húðþéttingu hjá Húðfegrun. Húðin er visibly stinnari og sléttari eftir meðferð með nýjustu tækni. Fagleg húðklínik í Reykjavík – bókaðu meðferð.
Mynd sýnir árangur á maga og mitti eftir húðþéttingu. Húðin hefur þéttst og áferð orðið jafnari eftir háþróaða RF-meðferð Húðfegrunar. Bókaðu faglega húðmeðferð í Reykjavík.
Árangur húðþéttingar sést á lærum og rass þar sem húðin er sýnilega stinnari og sléttari. Húðfegrun notar nýjustu tækni fyrir náttúrulegan og öruggan árangur. Bókaðu meðferð hjá sérfræðingum.
Hreinasta fylliefnið í varir

Hafðu samband varðandi húðþéttingu

Ertu með spurningar áður en þú bókar húðþéttingu eða líkamsmótun?
Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.

Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Hjá Húðfegrun leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og sérsniðnar meðferðir fyrir fitueyðingu og líkamsmótun. Við hjálpum þér að finna réttu lausnina hvort sem markmiðið er að draga úr þrálátri fitu, þétta húðina eða móta líkamann með öruggum og áhrifaríkum meðferðum. Með nútímalegri tækni og faglegri þjónustu fá viðskiptavinir einstaklingsmiðaða meðferð sem styður við náttúrulegan árangur.

Meðferðir fyrir líkamsmótun og húðþéttingu