Laxasæðismeðferð PDRN (pólýnúkleótíð)

Laxasæðimeðferð er húðendurnýjandi meðferð sem byggir á pólýnúkleótíðum (PDRN). Hún styður við náttúruleg viðgerðarferli húðarinnar og bætir raka, teygjanleika, áferð og ljóma. Efninu er sprautað í húðina og meðferðin er framkvæmd af lækni og hjúkrunarfræðingum.

Meðferðarsvæði: Andlit - Augnsvæði - Háls - Bringa - Handabök

Laxasæðimeðferð með pólýnúkleótíðum (PN) framkvæmd af sérfræðingi hjá Húðfegrun í Reykjavík sem endurnýjar húðina og bætir teygjanleika
Við erum opin núna (9-17)
Hjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun undirbýr ávaxtasýrumeðferð með klínískum vörum frá SkinCeuticals. Húðfegrun notar eingöngu fagleg efni og nýjustu tækni í húðmeðferðum. Bókaðu meðferð í Reykjavík.

Hvað er PDRN og hvernig virkar það?

PDRN eru líffræðilega virk, DNA-bundin efni sem unnin eru úr laxategundum. Þau hafa fengið mikla athygli í fagurfræði vegna endurnýjandi eiginleika og eru efni sem líkaminn þolir mjög vel.

Þau vinna djúpt í húðinni og styðja við náttúrulega endurnýjun hennar með því að örva trefjafrumur sem framleiða kollagen og elastín. Þetta styrkir húðina, eykur teygjanleika og bætir áferð hennar.

Auk þess styðja þau við endurnýjun húðfrumna og styrkja varnarhjúp húðarinnar, sem leiðir til heilbrigðari, sléttari og sterkari húðar. Þau hafa einnig róandi og bólgueyðandi áhrif sem geta dregið úr roða og ertingu.

Ávinningur meðferðar

  • Eykur heilbrigði húðar og gefur náttúrulegan ljóma  
  • Djúp og langvarandi rakavirkni  
  • Stinnari og teygjanlegri húð  
  • Sléttari áferð og jafnari húðlitur  
  • Minni fínar línur og hrukkur  
  • Róandi áhrif á viðkvæma húð  
  • Styrking húðar innan frá  
  • Stuðningur við náttúrulega endurnýjun húðar
Hjúkrunarfræðingur framkvæmir kinnfyllingu með hýalúrónsýru-fylliefni sem brotnar niður á náttúrulegan hátt í líkamanum. Skjólstæðingur liggur afslappaður með hlutlausan svip á meðan meðferðin fer fram, og í bakgrunni má sjá hluta af háþróaðri lækninga- og lasertækni Hudfegrun.
Móttaka Húðfegrunar í Reykjavík með nútímalegu og notalegu umhverfi fyrir gelísprautun og fylliefnameðferðir

Hverjum hentar meðferðin?

Meðferðin hentar öllum húðgerðum og aldri þar sem hægt er að aðlaga hana að þörfum hvers og eins. Hún er hentug bæði fyrir húð sem sýnir fyrstu merki öldrunar, minnkaðan teygjanleika, ójafnan húðlit eða bólur, sem og fyrir eldri húð sem hefur orðið slakari, sýnir dýpri línur eða hefur ójafna húð.

Meðferðin er hægt að framkvæma á andliti, augnsvæði, hálsi, bringu og handarbökum og hefur einnig sýnt góð áhrif á bláma og þreytu undir augum.

Hún hentar sérstaklega vel við:
- fínar línur og slaka húð
- þurrk og skort á raka
- bauga undir augum
- rósroða og viðkvæma húð
- ör og ójafnan húðlit

Laxasæðimeðferð og langlífi húðar

Langlífi húðar snýst um að viðhalda og styrkja húðina til lengri tíma í stað þess að bregðast aðeins við þegar vandamál eru orðin sýnileg. Laxasæðimeðferð fellur vel að þeirri nálgun. Hún styður við náttúruleg endurnýjunarferli húðarinnar og árangurinn byggist upp smám saman. Þetta er langtímanálgun, ekki skyndilausn.

Fagleg hjúkrunarfræðingur Húðfegrunar sýnir nýjustu Gelísprautunartækni með logóinu í bakgrunni. Bókaðu örugga meðferð hjá virtustu húðstofu Reykjavíkur.
Hópur vottaðra hjúkrunarfræðinga hjá Hudfegrun heldur á sprautum með hágæða hýalúrónsýru-fylliefni í hreinum og nútímalegum aðstæðum stofunnar. Í bakgrunni sjást vottanir kliníkurinnar sem undirstrika öryggi, fagmennsku og sérhæfingu í fylliefnameðferðum fyrir varir, kinnar, haka, kinnbein, undir augu og enni.

Almennar upplýsingar.

‍Árangur og fjöldi meðferða: Áhrif Laxasæðismeðferðar byggjast upp smám saman eftir því sem húðin endurnýjar sig. Fyrstu breytingar geta komið fram innan nokkurra vikna og árangurinn verður sýnilegri með tímanum.

‍

Mælt er með 3–4 meðferðum með um 2 vikna millibili. Viðhaldsmeðferð á 4–6 mánaða fresti getur hjálpað til við að viðhalda árangri til lengri tíma.

‍

Húðin verður fyrst rakameiri og ferskari, en með tímanum getur áferð, teygjanleiki og heildarútlit húðarinnar orðið jafnara og heilbrigðara.

‍
Eftir meðferð:
Eftir meðferð geta komið fram litlar bólur sem hverfa venjulega innan nokkurra klukkustunda eða næsta dags. Vægur roði eða bólga getur varað í 1–3 daga.

‍

Mikilvægt er að kæla meðferðarsvæðið vel fyrst eftir meðferð til að draga úr bólgumyndun. Ekki má snerta meðferðarsvæðið fyrstu 4 klukkustundirnar. Eftir það má hreinsa svæðið varlega með mildum andlitshreinsi og vatni og bera á rakagefandi krem.

‍

  • ofnæmi er fyrir fiski eða sjávarafurðum
  • um er að ræða meðgöngu
  • um er að ræða brjóstagjöf

FMælt er með að forðast líkamsrækt, sund, óhreint umhverfi og ryk sama dag og meðferð er framkvæmd. Mikilvægt er að nota góða sólarvörn, að minnsta kosti SPF 30–50, næstu daga og forðast beina sól eins og kostuFrábendingar
Meðferðin hentar ekki ef:

Fyrir og eftir myndir

Bestur árangur fyrir varafylliefni í Reykjavík
varafyllingar varafyllingarefni með öruggu efni
Hreinasta fylliefnið í varir
Hreinasta fylliefnið í varir

Hafðu samband varðandi Laxasæðimeðferð og pólýnúkleótíð

Ertu með spurningar áður en þú bókar Laxasæðimeðferð með pólýnúkleótíðum (PN)?

Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.

Þú getur haft samband hvenær sem er í gegnum bokanir@hudfegrun.is
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Hjá Húðfegrun leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og meðferðir sem sniðnar eru að þínum þörfum. Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina hvort sem þú hefur spurningar um húðmeðferðir, líkamsmótun eða bókanir. Með faglegri þjónustu og nútímalegri tækni leggjum við áherslu á öruggar meðferðir og náttúrulegan árangur.

Meðferðir fyrir húðendurnýjun og betri húðáferð