Við búum yfir 23 ára reynsla í húðmeðferðum.
• Gerir áferð húðar fallegri
• Vinnur burt unglingabólur
• Hreinsar óhreina húð

Húðslípun - Hreinsar og styrkir húð

Svæði: Andlit • Háls • Bringa • Bak • Líkami

Húðslípun er áhrifarík húðmeðferð sem inniheldur bæði grófslípun og fínslípun. Með meðferðinni er verið að vinna á ysta yfirborði húðar, fjarlægja dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi, örva starfsemi húðarinnar sem skilar sér í hreinni, þéttri og mýkri húð.

• Jafnar áferð og húðtón
• Þéttir og styrkir húðina
• Vinnur á óhreinni húð

Hvernig virkar Húðslípun?

Kristals og Demants Húðslípun er áhrifarík alhliða húðmeðferð framkvæmd með Silk Peel húðslípunartæki. Tvíþættri tækni er beitt í meðferðinni, grófslípun með kristalsögnum og fín slípun með demants stúti.

Meðferðin vinnur á ysta yfirborði húðar þar sem verið er að hreinsa dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi, örva blóðflæði og koma af stað endurnýjunarferli húðfrumna sem hjálpar húð að hreinsa og endurnýja sig.

Meðferðin hentar öllum aldurshópum og húðgerðum þar sem hún bæði yngri húð að hreinsa sig og viðhalda sér enn þéttir og styrkir eldri húð sem farin er að þynnast.

Ekki er ráðlagt að koma í Húðslípun ef sýktar bólur (e. active acne) eru til staðar og mælt er með að ráðfæra sig við meðferðaraðila áður en hafið er meðferð sértu á bólulyfjum.

Húðslípun Island

Hreinsar, styrkir og kemur jafnvægi á húð

Með Húðslípun er verið að fjarlægja dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi sem situr fast í svitaholum og fínum línum. Meðferðin vinnur vel á bólum og fílapennslum ásamt því að koma jafnvægi á olíuframleiðslu, þétta opnar svitaholur, jafna áferð húðar og húðtón ásamt því að milda ásýnd á grunnum bóluörum.

Með meðferðinni er einnig verið að örva  blóðflæði og kollagen framleiðslu húðar sem skilar sér í þéttari og stinnari húð, ásamt því að ásýnd fínna lína verður minni. Strax eftir meðferð fær húðin aukin ljóma ásamt því að vera þéttari, mýkri og sléttari ásamt því að vera móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið.

Húðslípun:
- Fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar
- Fjarlægir óhreinandi
- Þéttir opnar svitaholur
- Vinnur vel á bólum og fílapennslum
- Vinnur stíflum í húð þ.m.t mile kornum
- Jafnar áferð og húðtón
- Mildar grunn ör og fínar línur
- Mýkir og sléttir húð
- Styrkir og stinnir húð
- Mildar litabreytingar
Húðslípun Island Reykjavik

Almennar upplýsingar

Árangur meðferðar: Til þess að ná sem bestum árangri er mælt er með að taka allt frá 2-6 meðferðir en fjöldi meðferða fer eftir húðvanda og markmiði með meðferð en til þess að fríska upp á vandamálalausa húð næst góður árangur eftir staka meðferð. Til að viðhalda heilbrigði húðar og árangri eftir meðferð er mælt með að koma í meðferð á 1-2 mánaðar fresti.

Fjöldi meðferða:  Til að vinna á óhreinindum eða öðrum húðvandamálum er mælt með að teknar séu 4-6 meðferðir með 1-2 vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sé húð mjög óhrein og/eða örótt er mælt með að taka að lágmarki 6 meðferðir með 3 vikna millibili og viðhalda svo árangri með viðhaldhaldsmeðferð á nokkra mánaða fresti. Sé tilgangur meðferðar að viðhalda heilbrigði húðar er gott að koma í staka meðferð á 1-2 mánaða fresti. Til að sjá góðan árangur á húðtón og áferð er mælt með að koma í meðferðina a.m.k. 4-6 sinnum með 1-2 vikna millibili.

Alltaf þarf að líða a.m.k. vika á milli meðferða.

Fyrir meðferð: Mælt er með að raka skegg fyrir meðferð.

Eftir meðferð: Í flestum tilfellum er einungis um að ræða hita og roða í húð samdægurs. Í sumum tilfellum er húð þurrari fyrstu dagana eftir meðferð og því mikilvægt að nota gott rakakrem tvisvar á dag í viku eftir meðferð. Sé húð mjög viðkvæm geta myndast grunnir marpunktar þar sem húðin er þynnst, en þeir hverfa smám saman á nokkrum dögum.

Húðin er viðkvæmari fyrir sól fyrst eftir meðferð og því er mælt með að nota sterka sólarvörn og forðast sól eins og hægt er fyrstu vikuna eftir meðferð. Mælt er að sleppa líkamsrækt og sundi í sólarhring eftir meðferð.

Húðslípun er oft notuð samhliða öðrum meðferðum

Húðslípun hentar vel samhliða nær öllum húðmeðferðum. Þar sem meðferðin vinnur vel á ysta lagi húðarinnar og gefur henni fallegt og heilbrigt yfirbragð er gjarnan mælt með henni samhliða meðferðum sem vinna dýpra niður í undirlag húðarinnar. Næst þá enn betri og heildstæðari árangur þar sem verið er að örva mismunandi lög húðarinnar.  Dæmi um meðferðir sem henta alltaf vel samhliða Húðslípun eru t.d. Laserlyfting, Gelísprautun, DermaClear og Ávaxtasýrur. Hægt er að leita ráðgjafar hjá sérfræðingum Húðfegrunar til að finna þær meðferðasamsetningar sem henta þinni húð best.

Húðslípun Island Reykjavik

Árangur

Húðslípun er besta Húðhreinsun unglingar
Húðslípun Húðmeðferð reykjavik
Þú getur keypt þína meðferð í
vefverslun okkar.
Kaupa meðferð

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu
10% afsláttarkóða

Það eina sem þú þarft að gera er að skrá nafnið þitt og tölvupóstfang hér að neðan.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.

Með því að skrá þig ertu samþykk/ur því að fá tölvupóstsendingar frá okkur annað slagið. 

Það er auðvelt að afskrá sig af þeim lista.