Við búum yfir 23 ára reynsla í húðmeðferðum.

Húðin getur látið á sjá eftir sumarið. Margir fá brúna bletti og sólarskemmdir sem verða áberandi þegar líður á haustið og húðin fölnar. Aðrir taka betur eftir djúpum hrukkum í kjölfar sólbaða og enn aðrir glíma við þurra húð. En hvað er til ráða til að endurnýja húðina eftir sumarið? Sérfræðingar Húðfegrunar, tóku saman fimm ráð til að deila með lesendum.

1. Losnaðu við litabreytingar í húð

Að loknu sólríku sumri sitja margir uppi með litabreytingar í húðinni. Flekkir í vöngum, á enni eða annar staðar í andliti geta verið hvimleiðir og erfitt að hylja þá með farða. Góðu fréttirnar eru þær að við hjá Húðfegrun getum unnið á litabreytingum, sólarskemmdum, brúnum blettum, öldrunarblettum fæðingarblettum og jafnvel freknum. Við bjóðum upp á lasermeðferð sem er framkvæmd með nýjustu lasertækni á markaðnum. Nánari upplýsingar um meðferðina er að finna hér Litabreytingar, Lasermeðferð

2. Fjárfestu í góðu andlitskremi

Það er vissulega mikilvægt að drekka nóg af vatni til að viðhalda rakastigi húðarinnar. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að það er ekki nóg. Gott rakakrem er einnig nauðsynlegt.

Nýlega setti Neauvia á markað öfluga krema- og hreinsilínu undir yfirskriftinni Neauvia Advanced Care System. Þessi einstaka lína brúar bilið á milli hefðbundinna andlitskrema og hreinsivöru og þeirrar vöru sem notuð er við framkvæmd faglegra læknismeðferða. Virknin er því mun meiri en gengur og gerist. Því má búast við meiri árangri af notkun varanna, auk þess sem virkni hennar er fyrirbyggjandi. Neauvia Advanced Care System línan inniheldur mismunandi andlitskrem, serum, hreinsimaska, andlitshreinsi og andlitsvatn. Sérfræðingar Húðfegrunar aðstoða þig við valið á réttu vörunum fyrir þína húð.

3. Losnaðu við djúpar hrukkur

Gelísprautun er tilvalin meðferð fyrir þá sem vilja losna við djúpar hrukkur í andlitinu. Neauvia Organic geli er sprautað undir húðina og í kjölfarið sléttist úr hrukkum og ójöfnum. Neauvia Organic er hreinasta og öruggasta fyllingarefnið á markaðnum. Efnið er algjörlega skaðlaust og samanstendur af algjörlega náttúrulegum efnum. Meðferðin tekur fljótt af. Hér má lesa meira um Gelísprautun. Hér má lesa meira um Gelísprautun.

4. Endurnýjaðu húðina með Laser Peeling meðferð

Húðfegrun býður upp á öfluga lasermeðferð sem byggir upp kollagen djúpt í undirlagi húðarinnar á sama tíma og ysta lagið er endurnýjað. Bryndís, framkvæmdastjóri Húðfegrunar, segir Laser Peeling vera eina öflugustu meðferð sem býðst til að fá fallegri áferð á ysta lag húðarinnar og til að draga úr djúpum og grunnum línum.

Ásthildur er 59 ára og hefur komið í Laser Peeling hjá Húðfegrun

„Ég kom í Laser Peeling meðferðina vegna þess að ég þurfti að láta þétta húðina mína. Hún var orðin svo þreytt, slöpp og ysta lagið var orðið skemmt.“

Hvernig upplifðirðu Laser Peeling meðferðina?

„Ég fann aðeins hita í húðinni á meðan á meðferðinni stóð. Strax eftir meðferð fann ég að eitthvað var að gerast í undirlagi húðarinnar. Þá fann ég fyrir smá sviða og svo tilfinningu eins og húðin væri að dragast saman.“

Hvaða árangur sástu í kjölfar meðferðarinnar?

„Nokkrum dögum eftir meðferð sá ég mikinn mun á húðinni. Áferð hennar gjörbreyttist, húðliturinn varð jafnari, húðin virkaði unglegri og varð mikið þéttari, sérstaklega hálsinn sem var orðinn gríðarlega slappur. Þetta sá ég strax eftir fyrstu meðferð.“

5. Bættu rakastig húðarinnar

Hydro Deluxe meðferðin er tilvalin til að auka rakastig húðarinnar eftir sumarið. Hydro Deluxe er ein vinsælasta húðmeðferðin í Evrópu og skyldi engan undra. Þessi einstaka meðferð stuðlar að heilbrigðari, þéttari og stinnari húð auk þess sem hún grynnkar hrukkur og fínar línur. Hydro Deluxe er meðal þeirra meðferða sem örva kollagenframleiðslu húðarinnar. Hydro Deluxe er ein besta meðferðin með Hollywood Glow meðferð, því árangur af Hollywood Glow er ennþá betri ef farið er í Hydro Deluxe áður. Hollywood Glow ný meðferð hjá okkur á Húðfegrun.

Meðferðin er framkvæmd með nær-innrauðu ljósi (NIR infrared light) sem hitar húðina á þægilegan máta og örvar kollagenframleiðslu. Húðin þéttist og fær samstundis aukinn ljóma. Einnig spornar meðferðin gegn öldrun húðarinnar og áferð húðarinnar verður fallegri.


Kristján er 30 ára og hefur komið í Hydro Deluxe meðferð
„Húðin mín var þunn og ég átti í sífelldri glímu við þurrk. Eftir Hydro Deluxe meðferðina, finnst mér húðin hafa styrkst innan frá. Ég upplifi að húðin sé þykkari, heilbrigðari og hún hefur öðlast ljóma. Ég er ekki lengur grár og gugginn.“


6. Spornaðu gegn ölrdun húðarinnar

Ein af vinsælustu meðferðunum hjá Húðfegrun er Laserlyfting. Laserlyfting er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar og er árangurinn af laserlyftingu sambærilegur árangri af andlitslyftingu með skurðaðgerð. Laserlyftingin er bylting í meðferð á línum, hrukkum og slappri húð. Meðferðin styrkir húðina og losar þig við hrukkur og slappa húð á öllu andlitinu, augnsvæði, hálsi, svæði undir höku, bringu og handarbökum. Einnig spornar meðferðin gegn öldrun húðarinnar ásamt því að lífga upp á útlit þitt. Það sem gerir Laserlyftingu einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka uppbyggingu húðarinnar djúpt í undirlagi hennar með náttúrulegum og sársaukalausum hætti

Húðfegrun hjálpar þér að ná
betri húðheilsu með
öruggum, náttúrulegum og
vísindalegarannsökuðum meðferðum.

Allar meðferðir