Við búum yfir 23 ára reynsla í húðmeðferðum.

Háræðaslit og rósroði eru algeng húðvandamál. Díana, yfirhjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun segir að margir þeirra sem leita til Húðfegrunar hafi glímt lengi við að reyna að hylja roða eða jafnvel áberandi háræðaslit. Hún segir sérstakar meðferðir Húðfegrunar sem byggja á nýjustu tækni geti veitt varanlega lausn við bæði rósroða og háræðasliti.

Hvað er háræðaslit?

Háræðaslit er eins og nafnið segir til um, slit á háræðum sem er sýnilegt á yfirborði húðarinnar. Slíkt slit getur myndast hvar sem er en það er algengt að það myndist á nefi og kinnum. Bæði konur og karlar glíma við háræðaslit.

Díana hjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun segir að háræðaslit myndist einnig gjarnan á fótleggjum. „Margar þeirra kvenna sem leita til okkar hafa fyrst tekið eftir háræðasliti á fótleggjum í kjölfar meðgöngu. Einnig eru þeir sem ferðast mikið með flugi gjarnari á að fá háræðaslit. Þetta getur verið hvimleitt og í sumum tilfellum upplifir fólk þetta sem töluvert lýti. En sem betur fer er hægt að vinna á þessu með lasermeðferðunum hér hjá Húðfegrun,“ segir Díana.

Lasermeðferð gegn háræðasliti

Lasermeðferð er framúrskarandi meðferð sem vinnur vel á grunnu og djúpu háræðasliti á andliti, bringu og fótleggjum. Meðferðin er framkvæmd með þeim hætti að lasergeislinn hitar æðina sem verið er að meðhöndla án þess að skaða húð eða nærliggjandi vefi. Í kjölfarið minnkar æðaslitið smám saman. Algengt er að framkvæma þurfi meðferð í fjögur til sex skipti fyrir æðar í andliti og að lágmarki í sex skipti fyrir æðar á fótum til að ná góðum árangri.

Díana segir að í kjölfar meðferðar myndist oft roði og bólga sem geta varað í einn til tvo daga og allt upp í viku. Þetta sé einstaklingsbundið og misjafnt eftir því svæði sem verið er að meðhöndla. „Oft myndast hrúður, sár eða blöðrur í kjölfar meðferðar en mikilvægt er að láta slíkt alveg gróa til að ná hámarksárangri,“ segir Díana. Mælt er með því að bera græðandi krem á húð eftir meðferð og gæta fyllsta hreinlætis svo ekki sé hætta á sýkingu.

Steinunn er 44 ára og hefur látið fjarlægja háræðaslit hjá Húðfegrun

„Ég var með háræðaslit á nefinu og notaði farða til að reyna að hylja það en með misgóðum árangri. Ég kom í lasermeðferð hjá Húðfegrun og hjúkrunarfræðingurinn vann á slitinu af mikilli nákvæmni. Í kjölfar meðferðarinnar myndaðist hrúður sem datt af eftir rúma viku. Þegar hrúðrið var farið, sá ég að háræðaslitið var horfið líka. Það er mikill munur. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hægt er að vinna burt háræðaslitið með þessarri áhrifaríku tækni sem er í boði hjá Húðfegrun. Það er mikils virði að losna við húðlýti sem hafa plagað mig lengi.“

Hvað er rósroði?

Margir þekkja það að roðna í andliti í heitu veðri eða við mikla geðshræringu. Einnig eru þeir sem roðna við það að borða sterkan mat eða drekka heita drykki eða áfengi. Það sem kallast rósroði er hins vegar viðvarandi roði og þá gjarnan í andliti.

Er hægt að losna við rósroða?

Hjá Húðfegrun starfa sérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar sem kunna lagið á rósroða. „Við bjóðum hátæknimeðferð með lasergeisla sem vinnur gegn rósroða og rauðum blettum. Meðferðin er framkvæmd með þeim hætti að lasergeislinn hitar æðina sem verið er að meðhöndla án þess að skaða húð eða nærliggjandi vefi. Í kjölfarið minnkar rósroðinn smám saman,“ segir Díana.

Hverjir koma í meðferð gegn rósroða?

Díana, segir bæði konur og karla koma í meðferð gegn rósroða. „Við höfum það ánægjulega starf að hjálpa fólki að bæta heilsu húðarinnar og fá varanlega lausn. Margir hafa fengið mikla bót með lasermeðferðinni gegn rósroða en áætla má að framkvæma þurfi meðferðina í sex til tíu skipti. Mánuður þarf að líða á milli meðferða.“

Elínborg er 55 ára og hefur komið í meðferð gegn rósroða hjá Húðfegrun

„Ég hef glímt við rósroða og háræðaslit og hef alltaf þurft að nota farða. Það hefur háð mér í gegnum tíðina að ég roðna í andliti, til dæmis þegar ég fer í ræktina og borða ákveðinn mat.
Ég er búin að koma þrisvar í rósroðameðferð hjá Húðfegrun. Það þarf að vera þolinmóður og fara í nokkrar meðferðir til að ná rósroðanum almennilega niður. Ég mundi telja að ég þyrfi að fara í þrjú til fjögur skipti í viðbót til að ná þeim árangri sem ég sækist eftir. Rósroðinn verður viðráðanlegri með hverri meðferð.

Húðfegrun hjálpar þér að ná
betri húðheilsu með
öruggum, náttúrulegum og
vísindalegarannsökuðum meðferðum.

Allar meðferðir