
Sveppaeyðing er tvíþætt lasermeðferð með nýjustu tækni frá Alma Lasers sem fjarlægir svepp í nögl án neikvæðra áhrifa á nærliggjandi vefi eða heilsu. Hitinn frá lasernum brýtur niður bæði bakteríur í naglabeði og svepp í nögl á sama tíma og hann hraðar viðgerðarferli húðarinnar. Í kjölfarið vex ný og heilbrigð nögl upp á ný.
Naglasveppur er sýking sem byrjar jafnan í naglabeðinu og færist svo smám saman yfir í nöglina sjálfa. Oft berst sýkingin í naglabeðið í gegnum sprungur í nöglum eða áverka í aðliggjandi húð. Til eru mismunandi tegundir af sveppum og geta þær jafnvel smitast yfir í aðrar neglur.
Einkenni naglasvepps geta m.a. verið bognar og ójafnar neglur, hvítur, gulur eða gulbrúnn litur á nöglum og vond lykt. Auk þess eiga neglur það til að brotna og klofna auðveldlega og jafnvel losna frá naglabeði ef sveppur er rótgróinn.
Áður en meðferð er hafin er gott að fá greiningu á að um naglasvepp sé að ræða þar sem einkenni Psoriasis í nöglum geta verið mjög svipuð einkennum naglasvepps.


Sveppir í nöglum eru nokkuð þrálátt vandamál, enda eru þeir afar lífseigir. Hingað til hafa lasermeðferðir einungis verið að einblína á nöglina sjálfa, en þar sem rót vandans liggur í raun í naglabeðinu hefur verið erfitt að losna varanlega við naglasveppinn. Tæknin sem Húðfegrun notar er sú fyrsta sinnar tegundar og byggir á notkun tveggja mismunandi bylgjulengda. Önnur þeirra er að vinna á sveppnum í nöglinni og hin á bakteríunum sem til staðar eru í naglabeðinu. Með því að ráðast einnig að bakteríunum í naglabeðinu sem með tíð og tíma smitast yfir í nögl er í raun verið að koma í veg fyrir að vandamálið liggi í dvala og taki sig upp að nýju.
[Útskýrðu hvort hægt sé að sameina meðferðina við aðrar meðferðir og nefndu viðeigandi dæmi ef þau eru staðfest.]

Ertu með spurningar áður en þú bókar sveppaeyðingu?
Við aðstoðum þig við að finna réttu meðferðina og bóka tíma sem hentar þér.
