Húðgreining með húðskanna

Ítarleg húðgreining fyrir markvissari húðumhirðu

Með háþróuðum Canfield húðskanna greinum við ástand húðarinnar ítarlega og fáum innsýn í húðeinkenni sem sjást ekki alltaf með berum augum. Húðgreiningin hjálpar sérfræðingum Húðfegrunar að ráðleggja þér um meðferðir og húðvörur út frá raunverulegu ástandi og þörfum húðarinnar.

Hjúkrunarfræðingur hjá Húðfegrun ráðleggur skjólstæðingi um réttu húðmeðferðina í hlýlegu og faglegu umhverfi klíníkunnar. Með yfir 25 ára reynslu tryggir Húðfegrun öruggar meðferðir og frábæran árangur. Bókaðu faglega ráðgjöf í dag.
Kona í meðferð með fylliefni sem sléttir línur og hrukkur í kringum munn. Fáðu náttúrulegan árangur – bókaðu tíma hjá Húðfegrun, fremstu húðstofu Reykjavíkur með nýjustu tækni.

Skiljum húðina þína betur

Ástand húðarinnar getur verið annað en það sem sést með berum augum. Með háþróuðum húðskanna getum við greint húðina ítarlega og fengið dýpri innsýn í ástand hennar, þar með talið breytingar og húðeinkenni sem ekki eru alltaf sýnileg með berum augum.

Niðurstöðurnar gefa okkur mikilvægar upplýsingar um ástand húðarinnar og hjálpa okkur að meta hvaða meðferðir og húðvörur henta þér best.

Persónuleg greining á húðinni þinni

Í húðgreiningunni er húðin skoðuð ítarlega með húðskannanum og farið yfir niðurstöðurnar með sérfræðingi.

Við skoðum meðal annars:

  • Rakastig og ástand húðvarnarinnar
  • Fituframleiðslu og ójafnvægi
  • Litabreytingar
  • Roða og sýnilegar breytingar
  • Svitaholur og áferð húðarinnar
  • Merki um sólarskemmdir og ótímabæra öldrun

Út frá niðurstöðunum getum við sett upp persónulega meðferðaráætlun sem tekur mið af húðinni þinni, markmiðum og þörfum.

Hjúkrunarfræðingur framkvæmir kinnfyllingu með hýalúrónsýru-fylliefni sem brotnar niður á náttúrulegan hátt í líkamanum. Skjólstæðingur liggur afslappaður með hlutlausan svip á meðan meðferðin fer fram, og í bakgrunni má sjá hluta af háþróaðri lækninga- og lasertækni Hudfegrun.
Móttaka Húðfegrunar í Reykjavík með nútímalegu og notalegu umhverfi fyrir gelísprautun og fylliefnameðferðir

Frá greiningu í markvissa meðferð

Húðgreiningin er fyrsta skrefið í að skilja húðina betur og finna hvað hentar henni best. Niðurstöðurnar hjálpa okkur að velja markvissar meðferðir og húðvörur og forgangsraða því sem skiptir mestu máli fyrir þína húð. Þannig verður meðferðin persónulegri og markvissari, með áherslu á raunverulegt ástand húðarinnar.

Fylgjumst með breytingunum

Húðin breytist með tímanum og því getur verið gagnlegt að endurtaka húðgreininguna síðar.

Með endurteknum greiningum getum við borið saman niðurstöður og fylgst með hvernig húðin hefur þróast og hvernig hún bregst við meðferðum og heimameðferð.

Skjólstæðingur skoðar árangur fylliefnameðferðar í spegli eftir framkvæmd meðferðar, á meðan hjúkrunarfræðingur veitir faglega ráðgjöf um staðsetningu og magn fylliefnis. Náttúrulegur árangur og jafnvægi í andliti í hreinum og faglegum aðstæðum Hudfegrun.
Notalegt biðsvæði á húðklíník Húðfegrunar fyrir gelísprautun og aðrar húðmeðferðir

Fyrir hverja er húðgreining?

Húðgreining hentar öllum sem vilja öðlast betri skilning á eigin húð, hvort sem þú ert að upplifa ákveðin húðvandamál, vilt vinna markvisst gegn einkennum öldrunar eða einfaldlega vilt vita hvaða meðferðir og húðvörur henta þér best.

Ertu ekki viss um hvað hentar þinni húð?

Húðgreining getur verið góð byrjun til að öðlast betri skilning á húðinni og ákveða hvaða meðferðir og húðvörur henta þér best.

Fagleg hjúkrunarfræðingur Húðfegrunar sýnir nýjustu Gelísprautunartækni með logóinu í bakgrunni. Bókaðu örugga meðferð hjá virtustu húðstofu Reykjavíkur.
Meira en 26 ára reynsla af húðmeðferðum

Finndu meðferð sem hentar þinni húð

Skoðaðu úrval húðmeðferða hjá Húðfegrun og finndu það sem hentar þinni húð best.