Við búum yfir 23 ára reynsla í húðmeðferðum.
• Sléttir húðina
• Gefur fyllingu
• Grynnkar línur

Hyaluronic Acid Booster - Gefur raka og fyllingu

Svæði: Andlit - Augnsvæði

Hyaluronic Acid Booster er einstök efnasamsetning sem inniheldur náttúrulegar fjölsykrur, amínósýrur og steinefni sem er sprautað grunnt í húð á meðferðarsvæði. Meðferðin gefur húðinni aukin ljóma, fyllingu og raka sem stuðlar að heilbrigðari, þéttari og stinnari húð.

• Gefur fyllingu og ljóma
• Örvar kollagenframleiðslu
• Grynnkar hrukkur og línur

Hvernig virkar Hyaluronic Booster meðferðin?

Hyaluronic Booster er mesotherapy meðferð þar sem þunnfljótandi náttúrulegu fjölsykrugeli er sprautað með mörgum grunnum stungum víðsvegar um andlitið. Auk náttúrulegra fjölsykra inniheldur Hyaluronic Booster ýmis steinefni og ákveðna samsetningu amínósýra, sem eru aðal innihaldsefni kollagens. Það sem gerir Hyaluronic Booster svo sérstakt er þó fyrst og fremst náttúrulega steinefnið calcium hydroxiapatite (CaHA) sem örvar framleiðslu kollagens, elastíns og náttúrulegra fjölsykra í líkamanum.

Dregur úr og spornar gegn öldrun húðar

Eftir því sem við eldumst hægir smám saman á framleiðslu náttúrulegra fjölsykra, sem gefa húðinni raka og fyllingu; kollagens, sem gefur húðinni aukinn þéttleika; og elastíns, sem gefur húðinni teygjanleika. Húðin fer því að slappast og fínar línur og hrukkur byrja að myndast.

Hin einstaka efnasamsetning Hyaluronic Booster gefur húðinni aukinn raka og fyllingu sem tapast með aldrinum, þar sem hún inniheldur bæði mikið magn náttúrulegra fjölsykra og örvar framleiðslu þeirra. Hún stuðlar einnig að þéttari, stinnari og teygjanlegri húð og grynnkar hrukkur og fínar línur með því að örva framleiðslu kollagens og elastíns, mikilvægustu uppbyggingarpróteina húðarinnar.

Frískar upp á þurra og þreytulega húð

Margir glíma við þurra og þreytulega húð, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Hyaluronic Booster er algjör raka- og næringarsprengja fyrir húðina og hentar því sérlega vel til að fríska upp þreytta húð og gefa henni heilbrigðara og fyllra yfirbragð.

Gefur augnsvæði ferskari og bjartari ásýnd

Meðferðin er gjarnan notuð til að fríska upp á augnsvæðið. Þar sem efnið er þunnfljótandi hentar það þunnri og viðkvæmri húðinni á augnsvæðinu afar vel. Rakinn og næringarefnin gefa augnsvæðinu ferskara, líflegra og bjartara yfirbragð og aukin fylling dregur úr ásýnd bauga og þreytumerkja.

Almennar upplýsingar

Fjöldi meðferða: Góður árangur næst eftir staka meðferð. Til að ná hámarksárangri er mælt með 2 meðferðum með 3-4 vikna millibili. Til að viðhalda árangrinum er mælt með Hyaluronic Booster meðferð á 6-12 mánaða fresti.

Fyrir meðferð: Til að draga úr sársauka á meðan á meðferð stendur er mælt með að bera deyfikrem á meðferðarsvæði um klukkustund fyrir meðferð.

Til að draga úr líkum á bólgu og mari eftir meðferð er einnig gott að hafa í huga að gera hlé á notkun magnyls og annarra blóðþynnandi lyfja í 3-5 daga fyrir meðferð sé þess kostur. Það sama á við um inntöku lýsis og áfengis, sem bæði hafa blóðþynnandi áhrif.

Eftir meðferð: Eftir að meðferð er framkvæmd geta myndast roði og bólga sem geta varað í 2-7 daga. Í sumum tilvikum getur myndast mar eftir meðferð, en það eru eðlileg viðbrögð húðarinnar við meðferðinni. Mælt er með því að kæla meðferðarsvæði vel fyrst eftir meðferð þar sem það dregur verulega úr bólgumyndun.

Ekki má koma við meðferðarsvæðið í 4 klst. eftir meðferð. Eftir þann tíma má strjúka svæðið með mildum andlitshreinsi og vatni. Einnig má þá bera rakagefandi krem á svæðið og nota farða. Mælt er með að forðast sund, óhreint umhverfi og ryk sama dag og meðferð er framkvæmd. Mikilvægt er að nota sterka sólarvörn í a.m.k. viku eftir meðferð og forðast sól eins og hægt er.

Hyaluronic Booster er oft notuð samhliða öðrum meðferðum

Til að ná fram enn betri og heilstæðari árangri er hægt að framkvæma Hyaluronic Booster samhliða öðrum húðmeðferðum. Leita má ráðgjafar hjá sérfræðingum Húðfegrunar til að finna þær meðferðasamsetningar sem henta þinni húð best. Dæmi um meðferðir sem henta alltaf vel samhliða Hyaluronic Booster eru t.d. Húðþétting og Hollywood Glow.

Hyaluronic Booster og Húðþétting

Samsetning þessara meðferða hentar sérlega vel þeim sem vilja gefa þreytulegri húð sem byrjuð er að slappast þéttingu, raka og ljóma. Meðferðirnar eru báðar að örva kollagenmyndun í mismunandi lögum húðarinnar, Húðþétting dýpra niður í undirlagi húðar og Hyaluronic Booster í efri lögum hennar. Alhliða þétting næst því til lengri og skemmri tíma. Samhliða þéttingu gefur Hyaluronic Booster húðinni raka og ljóma og nærir hana með ýmsum steinefnum og amínósýrum.

Árangur

Hyaluronic acid booster meðferð reykjavik
Þú getur keypt þína meðferð í vefverslun okkar.
Kaupa meðferð

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu
10% afsláttarkóða

Það eina sem þú þarft að gera er að skrá nafnið þitt og tölvupóstfang hér að neðan.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.

Með því að skrá þig ertu samþykk/ur því að fá tölvupóstsendingar frá okkur annað slagið. 

Það er auðvelt að afskrá sig af þeim lista.

Hringdu í okkur í síma 5331320

Bóka tíma