Hvað er DermaClear - Lúxus Húðslípun?
Derma Clear - Lúxus Húðslípun er alhliða, þríþætt og áhrifarík meðferð sem er framkvæmd með DermaClear tæki frá Alma Lasers.
Í fyrsta skrefi meðferðarinnar eru dauðar húðfrumur fjarlægðar af yfirborði húðar, svitaholur opnaðar og óhreinindi í þeim brotin niður með notkun AHA sýra og mildri slípun.
Í öðru skrefi meðferðarinnar eru notuð sog og BHA sýra til þess að djúphreinsa húðina og losa þannig um og fjarlægja óhreinindi.
Í þriðja og síðasta skrefi meðferðarinnar er andoxandi og kollagen ríku serumi þrýst niður í húðina til þess að vernda hana sem og gefa henni aukinn raka og teygjanleika.